í dag er fyrsti rigningarlausi dagurinn í horsens í svona mánuð. ég get ómögulega skilið hvernig þetta er hægt. það rignir bara endalaust og það er alltaf grátt úti. nóvember er ógeðslegur mánuður.
nei ok. ekkert ógeðslegur mánuður, þarna fór ég aðeins yfir strikið - en hingað til hefur veðrið ekki verið upp á marga fiska!
þyrfti líka helst að kaupa mér hlýrri úlpu, eða kápu.
ég er í eðli mínu ekkert sérstaklega morgunhress einstaklingur. pabbi þurfti oft að beita þvílíkum brögðum til þess að fá mig á fætur hér í den - það endaði nokkrum sinnum með því að hann stóð með vatnsglas yfir hausnum á mér og hótaði að hella yfir mig.
nú hefur sigurjón fengið það verkefni að draga mig á fætur, þegar við vöknum á sama tíma. bókstaflega draga mig.
ég skil ekki hvernig ég kemst á lappir klukkan sex - ein og óstudd. líklega af því að ég er það þreytt að ég fatta ekki sjálf að ég sé að fara á fætur!
allavega... þegar ástandið er svona slæmt þá er morgunkuldinn ekkert að gera góða hluti. þess vegna þarf ég nýja úlpu.
dæmi:
pant.
pant.
pant
pant.
pant.
og pant...
eiginlega langar mig mest í þessa bleiku! og efsta.
hint: það eru að koma jól.
djók.
talandi um jól. ég fór á risa flóamarkað áðan og náði að kaupa 3 gjafir! vel gert.
spurning hvað ég tími að senda margar gjafir til íslands. kannski bara að þeir sem vilja fá eitthvað komi hingað.
ok. þá er það ákveðið.
nú þarf ég að læra.
blés.
dagný.