blogg
08.11.2009 17:26:01 / dagný

...

gott ráð til að sleppa við lögfræðilestur: gleyma að uppfæra reglusamningana!

nú á ég bara eitthvað gamalt lögfræðirusl sem að ekkert gagn er af og voila, enginn heimalærdómur. (það að ég þurfi að lesa það þegar nýju samningarnir koma í hús er ekki til umræðu).

annars hafa síðstu dagar verið súrsætir, vægast sagt.
mínar kæru, inga vala og kristín helga komu í heimsókn og huggulegheitin voru gríðarleg. ég kenndi þeim auðvitað að borða paradís og þær sáu um að halda h&m horni horsens uppi.
 


svo fórum við til århus í heimsókn til þórnýjar og olgu. þar var tekið vel á móti okkur með nýbökuðum bollum og baunaspírum, sem og öli. allur skarinn hélt svo á skólabarinn þar sem jólabjórnum var fagmannlega skammtað í krúsir á slaginu 20:59.



ég fann jólatré og stelpurnar fengu að smakka danska pizzu með dressingu sem að ingu mati "eru bestu pizzur sem hún hefur smakkað!"
það fæ ég reyndar ekki skilið þar sem mér finnst danskar pizzur ekkert upp á milljón fiska.

engu að síður, vel gert við!

dagurinn eftir var vitaskuld svolítið letilegur og alveg eftir uppskriftinni. allir að leggja sig í hrúgu, út að borða, nammi, kók og bíómynd. 
klassík.


ég ákvað síðan að best væri að enda þessa ágætu helgi á því að leggjast í ógeðslega pest. rétt náði að faðma stelpurnar bless (með hugarorkunni, því ég vildi ekki smita þær) og henda mér svo í rúmið og lá þar í viku!
skreið saman á föstudaginn og hef verið í matarboðum síðan. ég held að bella hafi alveg komið með réttu ráðin þegar hún benti mér á vodkann! 

aðrar fréttir eru þær að nú erum við sigurjón allt í einu orðin eins og flest kærustupör - búum bara tvö. höfum hingað til átt hina ágætustu sambýlendur, en herregud hvað það er fínt að vera bara turtó igen.
nú er aðalflippið hjá mér að fara í sturtu með opna hurð! hólííí - veit aldrei hvað gerist.

spurning hvernig ég ætti að toppa þetta á meðan sigurjón er á englandi!
voddavodda.

okei, þessi gella ætti náttúrlega að vera bönnuð.
ég get ekki hætt að gúggla hana.
http://2.bp.blogspot.com/_sVmH6ZXZkmk/SVh4baiqR-I/AAAAAAAAAK8/XeWsGdD-kLw/s400/Beyonce.gif

ok - verð að fara. bridezillas er að fara að byrja. spurning um að ná því.
djók.

hilsen,
dagný.
Anna Friðrika skrifaði
Ohh þetta litla blogg gladdi mig á sunnudagseftirmiðdegi :) Baaaara að láta vita.

Og ég vona að þú sért risin úr pestinni!
Linda skrifaði
sama og anna.

og að ég er í þessari stellingu akkúrat að núna. í sundbol. og fæn!
hróðný skrifaði
hæ, hæ.
oh, nú langar mig í ís!
helga skrifaði
taaaaaaaakk
Kristín Helga skrifaði
Hahah vei færsla. Ingu þóttu pizzurnar náttúrulega það góðar að hún át hálfa, kalda pizzu sem lá á borðinu fyrir framan hana, án þess að hafa nokkra hugmynd um hver ætti hana! ;) Ekki missa af bridezillas, bið að heilsa feitu systrunum.
svanhildur skrifaði
jii.. passaðu þig á því að fara í sturtu með opna hurð.. ég gerði það einusinni og bróðir sambýlingsins rölti inn - með lykil og allt! ..ég dó! :) annars vona ég að þú sért hressa pían en ekki veika pían!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan