|
|
25.07.2010 09:53:08 / dagný
nú fer ég alveg að fá nóg af þessum ofnæmislyfjum. ég gæti sofið allan sólahringinn ef ég vildi, þau gera mig svo þreytta. var að brasa eitthvað í allan gærdag og fór svo upp í sófa um kl. fimm - sekúndu síðar var ég sofnuð og vaknaði aftur kl. átta. þá var mér nóg boðið og ég staulaðist á fætur og nærði mig. gerði mig svo líklega til að poppa og setja mynd í tækið en það gekk nú illa. klukkan var ekki orðin ellefu þegar ég fór svo upp í rúm og svaf í tíu fokkíng tíma!
þetta er náttúrlega fáránlegt.
hvernig væri þetta ef ég væri í vinnu? haha - sjitt það væri búið að reka mig átta sinnum.
markmið dagsins: sofna ekkert fyrr en á miðnætti í kvöld. tjekk.
dagný.
»
19.07.2010 16:35:56 / dagný
djúsprojektið er eins og við mátti búast - sumt af þessu er bara eins og dauðinn dreginn upp úr saur og svo lendum svo líka á dásamlegum djúsum. fengum fínan í gær, úr papaya, kreistum appelsínum og agúrku. fínt að skella fullt af klökum með og þá er þetta eins og krap sem er kærkomið í þessum hita.
en...
... um daginn var ég að horfa á mynd sem heitir extraordinary measures og ég stóð bara og gapti. ég hef aldrei tekið eftir því hvað brendan fraser og jóhannes haukur eru sjúklega líkir. hvernig í veröldinni geta þessir tveir menn, sem búa sitthvoru megin á hnettinum, litið svona svipað út!?
jahér. en þetta var góð mynd - ég skældi allavega.
dagný.
»
15.07.2010 22:31:28 / dagný
í sumar erum við í fyrsta sinn bæði í fríi og þar að auki á sama staða. það er svolítið undarleg tilfinning, en samt sem áður mjög þægilegt og rómó að geta gert nákvæmlega það sem maður vill og akkúrat þegar maður nennir því. svolítið fullorðins. það eina sem stundum setur örlítið strik í reikninginn er skortur á peningum. en það er nú ekkert sem við lifum ekki af og við reynum að vera dugleg og finna okkur einhverja ókeypis afþreygingu (eins og að stela interneti nágrannans...)
dagarnir eru því misgáfulegir. það er kominn leikur af stað á nygade. um daginn keypti ég litla bók með fullt af djúsuppskriftum og leikurinn gengur út á það að sigurjón segir tölu og ég geri djúsinn sem er á þeirri blaðsíðu. í gær lentum við á brjálæðislega ljúffengum jarðaberja og melónudrykk sem fékk fjórar stjörnur af fimm mögulegum, en vorum ekki eins heppin í dag. á dauða mínum átti ég nú von... drykkurinn samanstóð af eplum, papriku og spínati og ef maður var í stuði sagði bókin að gott væri að skreyta með kanilstöng. ég get ekki sagt að við höfum verið spennt í morgun en ákváðum að gefa þessu sjens. þar sem ég á ekki safapressu fær blandarinn að finna fyrir því þessa dagana. djúsarnir verða því ógeðslega þykkir og þessi í dag var orðinn heitari en fínasta lasagne þegar hann loksins varð til. það var eins og einhver hefði sett shrek í tætara og hellt honum í glas. bragðið var svo eftir því. við gáfum drykknum mínus eina stjörnu og sigurjón rétt náði að svolgra í sig hálfu glasi. eftir það gafst hann upp! 
annars fórum við í duglegan göngutúr í dag. ég vann sigurjón í spretthlaupi og kenndi honum að gera upphitunaræfingar úr frjálsum. hann sýndi mér nýja gönguleið sem liggur meðfram vatni og í gegn um ægilegt trjálendi. heppnin var með mér því ég gleymdi að taka ofnæmistöflurnar í dag! ég kom svo auðvitað stórslösuð heim þar sem að eitthvað ógeðisdýr var búin að sjúga sig fast á mig og í panikki sló ég það af mér og eftir stóð ég með blóðugt hné. ég vissi nú ekki alveg hvað var í gangi þá. díses!
en nú er komin lúlltími á lúnar lappir. frekari djús- og baráttusögur seinna.
dagný og brói.
»
08.07.2010 13:26:07 / dagný
jahsko! þá er maður mættir til danmerkur igen og mikið djéskoti er það fínt. við fáum reyndar ekki net fyrr en eftir einhverja daga þannnig að ég sit úti á palli og stel nágrannanetinu. töff ég.
núeh... ég ákvað að reyna laga karmað mitt aðeins og sýna smá lit og því bauðst ég til þess að fylgja einni 6 ára stelpu allt ferðalagið og ég er ekki frá því að það hafi bara gert túrinn töluvert skemmtilegri og þar að auki þurfti ég ekki að borga yfirvigtina mína. jíha! við vorum orðnar perluvinkonur undir lokin, deildum nammi og ég fékk líka að horfa á bút úr bratz mynd. (þær myndir eru reyndar frá djöflinum komnar og ég get ekki með nokkru móti mælt með því sem sjónvarpsefni fyrir börn... en það er nú bara mín skoðun).
þegar lestin stoppaði loksins í horsens var sigurjón (nú er bannað að kalla hann sjonna, bara brói eða sigurjón er on) mættur í sumarlúðadressinu sínu, en einkennisbúningurinn hans frá maímánuði og fram í september er hlírabolur, hundónýtar og götóttar kvartbuxur og sandalar. nett! þvílíkur uuunaður að hitta hann aftur og geta verið eðlilegt kærustupar á ný! vííí.
til þess að fagna próflokum hjá honum og heimkomu minni fórum við út að borða og í keilu. ég tapaði náttúrlega mest - meira að segja hilmir, sem er 7 ára, vann mig!
síðustu dagar erum við svo búin að nýta til þess að koma okkur almennilega fyrir. náðum í búslóðina okkar, sem komst öll fyrir í geymslunni hjá elsu og kjartani og tróðum henni inn í ponsuskonsulitlu íbúðina okkar. heilagur á hælaskónum hvað hún er lítil, en samt svo krúttleg! einnig náðum við að eyða fullt af peningum sem við eigum bara alls ekkert í ikea. nú er þetta allt að taka á sig eðlilega mynd og ég held að okkur eigi eftir að líða mjög vel hérna. hverfið er reyndar svolítið á gráu svæði. hér eru allir mjög undarlegir og bæklaðir og sjúklega mikið af brjáluðum hundum út um allt. en það er í lagi, ég er búin að kynnast manninum á hæðinni fyrir neðan, lars og hann virkar sem bestaskinn. var reyndar með glóðarauga - hefur verið í einhverju smá basli greyið. varðandi hundana er sigurjón farin að skoða loftbyssur (djók).
þetta venst!
veðrið er búið að vera fáranlegt síðan ég kom. það er skýjað í dag en ég var næstum búin að gleyma hvernig það er. smyr bara á mig endalaust af vörn og nýt þess að labba um miðbæinn og kaupa mér ís. það er meira að segja komin ein strandferð á tjekklistann. útidyrahurðin er búin að standa opin frá því að við fluttum, nema rétt yfir hátnóttina. það er svít!
á to do listanum er svo að finna vinnu. sigurjón er með smá sumarvinnu, bara á laugardögum, en það er nóg til þess að dekka leiguna þar sem hann borgar svo lága skatta. ég þarf hins vegar að finna mér eitthvað meira töff.
þegar við fáum net skal ég svo lofa að taka myndir og sýna.
kossar frá nygade. dagný.
»
21.06.2010 11:59:23 / dagný
mér finnst voðalega undarlegt að blogga á meðan ég er á íslandi. finnst eins og allir viti bara hvað ég er að bauka alla jafna, sem er náttúrlega engan veginn rétt. mamma pressar í sífellu og biður mig daglega að skrifa eitthvað inn. hún biður mig reyndar ansi oft um að eignast börn, þannig að þetta er alveg spurning um að gegna henni ekki alveg í einu og öllu - þrátt fyrir að hún sé móðir mín og ráði faktískt yfir mér. eða svona næstum!
jæja. blogg it is. ég hef verið að telja niður í helgarfríum, hversu langt það er þar til ég fer aftur út. þegar ég byrjaði voru þau 12. nú er 1 helgi eftir. það hræðir mig stundum verulega mikið hvað tíminn líður hratt. þetta er ekki eðlilegt. þessum helgarfríum hef ég eitt á eftirfarandi hátt: 1. liggjandi og skælandi yfir því að sjá ekki kæróinn minn. 2. haldandi upp á afmæli lucie á hvanneyri með marglitum möffinskökum og öli. 3. vælandi í fólki og þrá að komast með því í sund. seinna fékk ég svo að sjá sæberg í alvöru júróvisjonham, sem var áhugavert með meiru! 4. undirbúa miðannaviðtal við ölmu frá háskóla íslands og margréti leiðbeinanda. það gekk vonum framar og hvorug þeirra ákvað að fella mig. 5. norðuferð til mömmu og pabba. fékk að sjá litluna dansa og vera geðveikt góða í því. það sem ég elska að vera hjá þessu liði! festist samt næstum því hjá þeim þar sem að eldgosið var í fullum skrúða og kom í veg fyrir flug. það reddaðist. á fimmtudeginum hélt ég líka rækilega upp á megrunarlausa daginn. 6. naut þess að liggja bara og gera ekki baun í bala nema lesa og kúra (já, ein. það er alveg hægt) og horfa á greys. skrifaði líka smá lokaritgerð. 7. flutti í nóatúnið til sæbba og átti mjög erfiða danshelgi. grétum það hvað við erum gamlar. 8. heimsókn norður - alveg það allra besta. hitti nýjasta vin minn, hinrik nóa og fór í afmæli til viktoríu. lék við mömmu og pabba því þau eru best. 9. fór á æskuslóðir og eyddi sjómannadegi á patreksfirði í fyrsta sinn í mörg ár. æðislegt að gista hjá frænku, hitta tóu og knúsa möndluna. það var svo ótrúlega ljúft og ég kom heim með gullmedalíu í kappróðri. geri aðriri betur. unaðslegir ferðafélagar gerðu líka langa roadtrippið á slæmum malarvegum bærilegt og meira til! 10. stelpast með lucie. fara í matarboð. vera kjút. drekka frappó með sæbba. lesa slúður. 11. mætti norður og átti þar langa helgi. sá stúdentana frá ma og fékk tár í augun eins og alltaf. þetta árið var það samt aðallega af því að ég var ekki boðin í neina veislu. mamma bjargaði því þó og gerði kökur! nýttum góða veðrið og borðuðum úti á palli, ég heimsótti langömmu og fór í mótorhjólaferð með pabba. rallaði og dansaði með stelpunum í typpi og sá opnunarsýninguna hjá heklunni.
nú sit ég stjörf af þreytu með hor og hálsbólga og afneita því að ég sé lasin. kvíði því jafn mikið og ég hlakka til að fara út. plís komiði og heimsækið mig!
dagný.
»
10.06.2010 00:00:07 / dagný
kannski svolítið langt síðan ég skrifaði hér inn, þið afsakið. ég hef bara mikið að gera þessa dagana og nýti frítímann gjarnan í heimskulega hluti, t.d. í að hanga á kaffihúsum og lesa tískublogg. eitt af þeim fjölmörgu bloggum sem ég glugga í er manuelu síða... ég ætla að misnota það aðeins og stela af henni lista sem gott er að notfæra sér þegar ekkert annað er í boði. skammtímalausn, góðan daginn!
leikurinn felst í því að nefna 12 atriði í lífinu sem mér líkar vel við, 1 sem ég elska og 8 sem ég tel mig hata.
mér líkar:
að vakna snemma um helgar, kúra smá og snúsa og nýta svo daginn í eitthvað skemmtilegt
skókaup
íslenskar og albjartar sumarnætur sem að létta lundina til muna!
þegar ég næ degi þar sem ég innbyrgði ekki líkamsþyngd mína af sælgæti
að láta koma mér skemmtilega á óvart
ferðalög til framandi landa
litrík föt og skart
góð tónlist, sérstaklega þegar ég hluta á hana ein í headphonum eða live á tónleikum
stundvísi
lyktin af nýbökuðu brauði á sunnudögum
þegar klukkan er að verða fjögur á föstudegi
að ég eigi bara eftir að upplifa 21 vakn með engan sigurjón við hliðina á mér!
ég elska:
fólkið sem að stendur mér næst
ég hata (ok kannski svolítið gróft orð, en jæja):
að þurfa að bíða eftir fólki
þegar ég plana hlutina ekki nógu vel
að þurfa að plana hlutina svona ógeðslega vel - þetta er sjúkt
mígreni
facebook
þegar ég er vanþakklát - sem er allt of oft
þegar fólk brasar svo mikið að það truflar aðra, t.d. í bíó eða flugvél. god hvað það er pirrandi!
að eiga aldrei pening
þar til næst...
... bless og takk - ekkert snakk (eins og bert segir). dagný.
»
16.05.2010 21:31:02 / dagný
á fimmtudaginn fór ég í nammibann. á föstudaginn fór ég svo út í sjoppu og keypti mér bland í poka. það var mjög undarleg athöfn, í alla staði.
ég kom inn á vídjóleiguna: góða kvöldið, ég ætla að fá bland í poka hjá þér. afgreiðsluguttinn: góðan daginn. (klukkan var að verða 23). ég: ha? hah... já. guttinn: nei ætlaði bara að ljúka þessu af, hahahaha! (mikill hlátur sem sagt). ég: ha? já ok. (skildi ekki alveg brandarann). sniðugt. eee... ok. ok. ú! fæ ég að velja svona úr borðinu, enginn nammibar hér. hef ekki gert svona síðan ég var krakki! guttinn: já hversu ógeðslegt er það! sýklahlaðborð og þess vegna er það ekki í boði hér. ég: eee... akkúrat. heyrðu ég ætla að fá svona kirsuberjahlaup og svartar bombur. guttinn: ertu viss um að þú viljir ekki svitalyktaeyði til að sleikja? (tekur upp svitalyktaeyði og brosir). hahahah! ég: neeenei. bara svona... bland. heh. guttinn: svo á ég líka svona alls konar tilbúið í poka, kúlur og krítar og eitthvað. ég: nei nei þetta er fínt bara hér. (brosi og bendi í borðið). gutinn: og svo svona slím, eða krem, sem þú bara sprautar upp í þig. krakkarnir kaupa það mikið. ég: (farin að efast mjög mikið um hvað hann væri að reyna að selja mér) njaa... guttinn: alveg viss? (tekur aftur upp svitalyktaeyðinn).
hvaaaað er málið? er þetta eitthvað trend sem ég er ekki að fatta? leyniorð yfir "viltu kaupa heróín og koma svo í swingpartý?"
ég varla hafði lyst á namminu þegar ég kom heim. samt var ég undir sæng og komin með vídjó í tækið. það telst mjög spes. ef það væru kosningar í gangi um afgreiðslumann mánaðarins þá fengi þessi ekki mitt atkvæði. jeminn.
svo fékk ég gríðarlegt samviskubit daginn eftir þar sem að nammimagnið var á við sæmilega 3 rétta máltíð. þess vegna ákvað ég að fara út að labba, nema hvað að ég fékk risastór hælsæri og illt í bakið. sanna það hér með enn eina ferðina að of mikil hreyfing er bara alls ekkert holl.
popp&kók dagný.
»
11.05.2010 23:36:14 / dagný
þessa dagana ætti ég að vera að skrifa ritgerð... lokaritgerðina í starfsnáminu. einbeitningin er í algjöru lágmarki og ég skoða ótrúlegustu hluti á internetinu, marga oftar en einu sinni bara til þess að láta tímann líða og komast hjá því að skrifa. þar að auki les ég mjög mikið og ekkert af því er námsefni eða nokkuð tengt félagsráðgjöf. ég ligg aðallega í sænskum krimmum. allt í einu er svo komið kvöld, ég dauðþreytt og ekki einn stafur kominn á blað. nú á ég bara eftir 20 þúsund tákn (með bilum). jéss.
annars átti ég notalega helgi fyrir norðan. ég held að það sé besta tilfinning í heimi að koma til mömmu og pabba og finna lyktina þar og leika við fjölskylduna. sitja með úfið hár á pallinum með rjúkandi heitt kaffi. tala nú ekki um eftir að nýju garðhúsgögnin voru keypt! helgin í stuttu máli: mamma hélt matarboð, erla tók þátt í danssýningu og pabbi gaf mér hvítvín. magnús er því miður í noregi. sjitt hvað lillan er orðin góð að dansa, ég býð ekki í það!
brot af því besta á netflakkinu: eldfjallakjóll. ekkert sem ég ætla að fjáfesta í, en finnst hugmyndin ýkt fyndin.
ungur og eeeldheitur depp. hann, myndi ég aftur á móti kaupa, fyrir marga peninga.
leðurbættar leggings. mega kúl og ég lét mömmu gera svona fyrir mig um helgina! víí. nammi"bar" sem er töluvert krúttlegri en þessi í hagkaupum. langar svolítið meira að skreppa á þennan.
jæja! krimminn les sig ekki sjálfur, það eitt veit ég.
dagný.
»
06.05.2010 22:37:39 / dagný
ó hvaða ég vona mikið að þetta komist aldrei í tísku. þvílíkur viðbjóður, ég get með engu móti áttað mig á þessu fyrirbæri, þetta er svolítið eins og spelka. þessa mynd fann ég inn á einhverjum af þessum hundrað tískubloggum sem ég les. finnst þetta í alla staði vandræðalegt. ætli þetta sé líka spennt að aftan?
þetta finnst mér aftur á móti afar heitt... loðnar augabrúnir. eða svona, semí sjúskaðar. svo er ég náttúrlega með eitthvað thing fyrir þessum litlu olsen systrum - samt þoli ég þær ekki. spurning um að fara að safna brúnum? mínar eru náttúrulega hlægilega ljótar. en, í öðrum fréttum er þetta helst:
ég skrifa, sendi og svara emailum og reyni hvað ég get að finna handa okkur bróa nýja íbúð í danmörku. síðan sendi ég hann af stað til þess að skoða. eins og er situr efst á listanum lítil krúttleg íbúð í mellu/terrorhverfinu. allt við hana er mjög ágætt nema nágrannarnir, ég veit ekki hvað mömmum okkar finnst um það. sigurjón sagði mér allavega að koma með hafnarboltakylfuna hans með út ef við tökum hana. það hljómar traustvekjandi! þar að auki erum við á biðlista á görðunum hjá skólanum hans bróa, sem er náttúrlega langt í burtu frá öllu en ótrúlega ódýrt. finnst það eiginlega minna spennandi en mellutjúttið og það lengir ferðalagið mitt í skólann töluvert. við krossum fingur og vonumst til þess að eitthvað detti upp í hendurnar á okkur fyrir mánudaginn, því þá þarf að láta vita með fyrri íbúðina.
bras.
starfsþjálfunin gengur vel. ég er farin að taka viðtöl sjálf, fá fólk til mín og er því þeirra félagsráðgjafi. auk þess fer ég á hundrað fundi á viku, námskeið og sendiferðir. mér líður mjög fullorðins, vægast sagt. á þriðjudaginn kom svo tengilinn minn úr háskólanum hér að meta starfsþjálfunina sem komin er. það gekk mjög vel og ég var ekki rekin, hjúkk. ég get því andað rólega og farið að byrja á verkefninu mínu (sem ég á að skila eftir allt of stuttan tíma... ég skil ekki af hverju ég er að blogga en ekki vinna það!).
á morgun held ég svo norður til mor og far og sé þá litlu systur mína spranga um á danssýningu í (að hennar sögn) afar óviðeigandi klæðnaði. ég ætla ekki að taka myndir eða vídjó af því.
vei - alveg að koma helgarfrí! og það styttist í danmörkina... og fyrir elskulega skranfrænku mína hana sísí set ég hér inn email adressuna mína. djf86@hotmail.com dagný.
»
29.04.2010 09:49:44 / dagný
ég man að einu sinni voru svona klukk-leikir, eða hvað sem það nú hét, þegar bloggmenningin stóð sem allra hæst. nú er komið nýtt, ég ætla svo sannarlega að taka þátt í því! ligg veik heima í volæði og er búin að skoða allt internetið, lesa allt sem ég nenni að lesa og því er þetta bara eftir.
svo fyndið samt hvað það eru fá blogg eftir og þau eru eiginlega öll eins. tískublogg sem að sýna myndir af öllu nýju eða stelpur að taka mynd af sér í og segja hvar þær keyptu fötin sín. mér finnst það hálf hallærislegt, en ég les það samt alveg. helling og hef bara frekar gaman af.
en ok. einntveirogbyrja:
Three names I go by: dagný (líka í danskri útgáfu. dánu...)
daynew dagga
Three places I´ve lived:
patreksfjörður akureyri horsens
Three favorite songs:
pff... ég get engan vegið valið sérstaklega 3 uppáhaldslög! ég elska samt þessi across the universe - the beatles no one's gonna love you - band of horses comfortably numb - pink floyd
Three favorite drinks:
kók í dós vatn (þarf maður eiginlega ekki að segja það?) múltídjús
Three TV shows I watch: modern family
californication grey's anatomy
Three places I´ve been:
ítalía usa perú
Three places I´d like to visit: grikkland
frakkland rússland
Three favorite old TV shows:
baywatch, með pizzu inni í stofu. flipp. home improvement (horfði alltaf á það með pabba, hah) friends
Three makeup products I can´t live without:
á ég í alvöru að geta svarað þessari spurningu? ég á varla 3 snyrtivörur. ok.
maskarinn minn - veit ekkert hvaða merki hann er kløver vaselineið mitt eee... og bara... svitalyktaeyðir?
Three things I´m looking forward to: að fá mömmu, pabba og erlu í heimsókn um helgina
hitta sigurjón! koma mér fyrir í nýrri íbúð, taka upp úr kössum, borða ódýran kínverskan takeaway og drekka bjór
steiktur listi! ég er hálfnuð í praktikínni. í næstu viku kemur tengillinn minn úr háskóla íslands upp í vinnu og metur það sem ég er búin að vera að gera og hvernig þetta hefur gengið. stress?
já og ef að einhver vill koma og færa mér eitthvað, eins og t.d. nammi eða kringlu&kókómjólk, þá er þeim það velkomið.
dagný.
»
25.04.2010 11:49:23 / dagný
mikið vona ég að komandi sumar verði ekkert í samræmi við sumardaginn fyrsta. hann var ekkert sérstaklega kjút! lucie og inga vala buðu mér í árlegt hreðjagrill á hvanneyri á miðvikudagskvöldinu. áhyggjulaus skaust ég á n1 uppi á höfða, lagði bílnum og fékk far með fallegri snót. kvöldið heppnaðist mjög vel, við sátum úti í rjóðri, átum ket, sötruðum öl og pissuðum úti í skurði. smá saman færðist gleðin yfir á barinn og eltum við bara þvöguna. þar náði ég að stíga í bjórpoll, dansa smá, missa jafnvægið og renna til svo að snerist upp á ökklann ómögulega. ég haltraði það sem eftir var kvölds...
daginn eftir var ég vakin með óþægilegu símtali. lögreglan í reykjavík (ég fékk smá fyrir hjartað og reyndi að finna út hvað í veröldinni ég hefði nú gert af mér!) tjáði mér það að einhverj hefði klesst á bílinn og keyrt í burtu. ég ætti vinsamlegast að hafa samband þegar ég kæmi í bæinn. ég skellti svo á, vitandi ekkert hversu mikið bílinn var skemmdur eða hvernig í ósköpunum ég ætti að koma mér aftur í bæinn. var alveg tóm og ofan á allt mjög timbruð, þrátt fyrir að hafa ekki (og hér legg ég mikla áherslu á ekki) drukkið mikið kvöldið áður og ekki (aftur mikil áhersla) verið sérstaklega ölvuð. því var þetta mjög ósanngjarnt! dónatelló dóri kom þó til bjargar og skutlaði mér og helgu lucie í bæinn um miðjan dag. á leiðinni í göngin fattaði ég að lyklakippan mín var enn stödd á hvanneyri. bömmer!
þetta bjargaðist þó allt á endanum og á miðnætti endurheimti ég kippuna og gat fjarlægt bílflakið af planinu hjá n1. hann var mun minna skemmdur en ég var búin að ímynda mér og auk þess náðist hrottinn sem að klessti á hann.
ökklinn er allur að koma til og ég held í vonina að ódýra silfurarmbandið mitt (sem ég keypti á kjötmarkaði í perú) finnist. ég veit ekkert hvenær, hvar eða hvernig ég týndi því! kannski er það bara undir rúmi, ég hef ekki athugað enn.
en lífið er gott og ég á nýja skó. ég get því ekki grátið. auk þess heyrði ég í lóunni í gær og mér varð hlýtt í hjartanu. 9 helgarfrí þar til ég hitti bróa!
gleðilegt sumar!
dagný.
»
18.04.2010 14:48:45 / dagný
ég var búin að blogga sjúklega langa sundsögu um litlar stelpur sem að máluðu sig geðveikt mikið þegar þær fóru upp úr kl. níu á þriðjudagskvöldi. svo las ég hana yfir og sá hversu ógeðslega leiðinleg lesning það var og strokaði út. hjálpi mér allir heilagir hvað þetta var hræðilegt.
næsta blogg eftir mánuð? ég held ég sé að missa tökin á elnagloz. bömmer.
dagný.
»
11.04.2010 18:34:31 / dagný
mikil ósköp hvað ég hefði viljað framlengja páskafríið mitt um svona mánuð. það leið allt of hratt - en gerði mig bæði feitari og hamingjusamari!
eins og áður hefur verið komið inn á þá átti ég eina viku í kærustuparaleik. ferlega notalegt með hótelheimsókn og bíóferð, sundlegu og bæjarferðum. fengum meira að segja afnot af íbúðinni þeirra sæbergs og klofs, sem gerði góða hluti! eins og við mátti búast var truntalega vont að kveðja aftur. á leið minni heim frá leifstöð þurfti ég að leggja mig alla fram við það að þurrka tárin til þess að sjá út og keyra ekki út af. mamma og pabbi voru líka í borginni auk þess sem að tengdó létu sjá sig. við þurftum því ekki að hreyfa okkur nokkurn skapaðan hlut en náðum að hitta fullt af merkilegu fólki! verður að teljast gott.
nú er ég að reyna að trappa mig niður úr sykurátinu og viðbjóðnum. það gengur nú ekki betur en svo að það eru tertur í morgunmat og nammibar á kvöldin. nú ætla ég í alvöru að hætta að lifa svona eins og smákrakki og fara að éta eitthvað eðlilegt! byrjunin á því var að kaupa sér svona:
mér finnst mjög fyndið að skrifa á flöskuna að drykkurinn sé stútfullur af trefjum... það er mesta lygi sem ég hef heyrt - bara af því að það er eplabragð af vatninu! haha. en best að styðja þessa vilteysu.
kveðja, páskaspekuð dagný.
»
28.03.2010 21:49:03 / dagný
ef ég væri með svona fína, langa og mjóa leggi þá væri ég alltaf alltaf klædd í svona sokka og sokkabönd. þá meina ég sko alltaf. þetta er það allra heitasta sem ég veit um! w-w-w-w... spurning um að hætta að borða nammi í morgunmat, kökur í hádegismat og engjast svo um af gallblöðruleysisóþægindum? gæti hjálpað til með að fá fínni leggi.
annað sem ég væri til í að panta: svona rosalega fínan bol. geggjað venjulegur með ýkt kúl á öxlunum. ég væri samt ekki svona emo í honum.
nennu til að dunda mér við það að gera venjuleg föt skemmtilegri. bara ef ég væri flinkari í höndunum... erla systir fékk öll þau gen, með tölu!
svona fallegt ljósatré... fyrst þarf ég reyndar að eignast heimili. hvað er það á milli vina?
þennan kjól! finnst hann tryllt fagur.
oooh og sömuleiðis þessi. reyndar væri sá seinni ákjósanlegri í fatakápinn.
og að lokum panta ég þennan! og viti menn! hann kemur á morgun. veeeheij!
dagný, spenntari en allt.
»
26.03.2010 00:25:31 / dagný
lóan er komin, eða svo segja þeir hjá morgunblaðinu. ég elska fyrstu gaulin í henni - hef þessa lóusýki frá móður minni. ég er reyndar bara frekar sjúk í þessa árstíð. veðrið í reykjavíkinni í dag var meirháttar og smituðust starfsmenn þjónustumiðtöðvarinnar sannarlega af vorinu. fólk varð allt léttara í lund, þurfti í gríð og ert að "skreppa aðeins út" og í lok dags fór ég með kennaranum mínum á skómarkað og í ísrúnt! krúttlegur fimmtudagur með meiru. ég fann líka hvernig vortilfinningarnar helltust yfir mig í dag. mér finnst allt krúttlegt og get ekki beðið eftir því að fá bróa minn til íslands. fór meira að segja út að hlaupa, sem ætti að teljast til tíðinda.
nú vil ég bara fá ís í öll mál, sjá blómamunstur í kjólum, hanga í sundi og á kaffihúsum. hlusta á vortónlistina mína og lesa góða bók. aaahh!
plús allt þetta þá langar mig sjúkt í svona pils!
fyrir þá sem fannst þetta of væmið og gáfust upp í annarri línu... fokkjú! ég sleppti mesta viðbjóðnum, en er væmin í dag og verð það þangað til að ástmaðurinn verður farinn aftur til danmerkur.
sjúk dagný.
»
Síður: 1 2 3 ... 33
|
|